Sunnudagur, maí 20, 2012
Viðhald Feldur 10 ráð til að kemba feldinn

10 ráð til að kemba feldinn

Reyndu þessi tíu ráð til að ná því besta fram með því að kemba og greiða feldinum

1. Notaðu réttan bursta fyrir réttan feld. Notaðu beigða víragreiðu eða pinnabursta fyrir langan feld, venjulegan vírabursta fyrir meðal- eða stuttan feld með þykkum undirfeld, vetling eða gúmmíbursta fyrir stuttan mjúkan feld.

2. Hárnæring
hægt er að fá mismunandi vörur en sniðugast er að kaupa spreynæringu sem þú úðar yfir feldinn áður en þú burstar hann, þetta hjálpar til að leysa hnúta og flóka í lengri feldum

3. Burstaðu og kembdu fyrir baðið.
Flókar verða þéttari og erfiðari meðhöndlunar í blautum feld.  


4. Kerfisbundin kembing. Best er að byrja aftarlega á bakinu og vinna sig upp og enda við hausinn og eyrun. Kenningin er sú að ef hundurinn sér ekki hvað er að gerast þá eru minni líkur á því að hann streytist á móti. Notaðu alltaf sama ferlið, byrjaðu á sama stað og endað á sama stað. Þannig taparðu ekki áttum og gleymir ákveðnum svæðum og hundurinn mun læra að vita hverju hann á að búast við.

5. Kemdu niður að húðinni en ekki kemba húðina.
Ef þú nuddar burstann of fast að húðinni þá getur hann fengið sár – verður pirraður, rauð húð getur þarfnast þess að þú leitir til dýralæknis. Farðu varlega um viðkvæm svæði svo sem um magann og innan leggjanna.

6. Einbeittu þér að einu svæði og einu lagi af feldnum í einu.
Skildu feldinn með því að ýta honum aftur með annarri hendinni og kembdu svo með hinni hendinni feldinn niður lítið svæði í einu. Notaðu snöggar djúpar strokur.

7. Taktu þér þinn tíma.
Það getur verið erfið vinna og tekið nokkurn tíma, sérstaklega á hundum með þykkann feld eins og Cocker Spaniel.

8. Burstaðu fyrst og kembdu svo.
Þannig nærðu bestum árangri með flóka og hnúta.

9. Klipptu mikið flæktan feld og leyfðu honum að vaxa út.
Hlífðu hundinum við sársaukanum og ónáðinu við margra tíma flókabaráttu.

10. Verðlaunaðu hundinn.
Þetta er nú líka erfitt fyrir hann.
Deila á facebook