Langur feldur eða stuttur.
Þegar kemur að baðinu þarf að hafa í huga hvernig feldurinn er til að vita hvaða skref skal taka.
Alveg eins og er með mannfólkið, getur stuttur feldur verið nokkuð einfaldur, skola, hreinsa og búið. Tegundir með stuttan feld, þá sérstaklega þær sem hafa verið ræktaðar til að blotna, þurfa minna viðhald í feldinu,. En það þarf samt að baða þá, sérstaklega ef þeir eru virkir.
Síður feldur þýðir meiri vinna, meiri vinna frá þér og hugsanlega frá öðrum. Bara til að halda feldinum hreinum og réttum.
Grunnatriðin til að hafa í huga við það að þrífa hund eru:
- Síðan feld þarf að kemba fyrir þvott. Stuttur feldur getur haft gott af því en síður feldur þarf kembingu til að koma í veg fyrir flóka og hnúta.
- Þó að hundurinn streytist á móti þarf að bleyta feldinn alveg í gegn. Vertu viss um að feldurinn verði blautur í gegn. Hitastigið getur hjálpa til við að koma í veg fyrir að hundurinn streytist á móti, ekki hafa vatnið heitt, kaldara vatn getur hjálpað hundinum að slaka á.
- Notaðu sápu eftir því hversu óhreinn hundurinn er. Síður feldur þarfnast meiri sápu þar sem þeir hafa meiri feld. Passaðu að feldurinn sé vel sápaður og allur búkurinn tekinn, sérstaklega handakrikar, magi og rass.
- Það þarf að þrífa alla hunda vel, þetta getur verið erfiðara verk með síðari feld. Drulla og óhreinindi sem eru látinn liggja eftir í feldinum geta valdið kláða og sýkingum. Skolaðu og nuddaðu vel þar til vatnið sem rennur af hundinum er hreint og tært.
- Hárnæring. Flestir síðir feldir munu græða á því að vera sérstaklega þvegnir með hárnæringu. Sérstaklega þegar komið er að því að bursta og kemba feldinn síðar.
- Stuttir feldir geta einfaldlega hrist af sér bleytuna eftir þvott, þá sérstaklega yfir sumarið. Þó er gott að nota handklæðið til að draga úr því að umhverfið blotni. Hafðu alltaf tvö handklæði til taks, sérstaklega fyrir síðan feld. Hundar þorna hraðar ef þeim er þurkað með handklæði frekar en hárþurrku.
- Síðast en ekki síst, síðan feld þarf að bursta og þurrka með blásara svo þeir komi sem bestir úr þvottinum. Farðu varlega með blásarann, vertu viss um að hann er stilltur á kaldann blástur. Þetta getur tekið þó nokkurn tíma svo þú skalt passa að velja þér þæginlegan stað bæði fyrir þig og fyrir hundinn.