Sunnudagur, maí 20, 2012
Viðhald Hreinlæti Hundurinn veltir sér upp úr einhverju

Hundurinn veltir sér upp úr einhverju

skitugurÞú nýtur þess að fara í ilmolíu nudd. Eins óspennandi og þér kann að þykja það þá fyrir sumum hundum er þetta sambærilegt við það að velta sér upp úr mykju og allskonar ófögnuði. Margir vilja einnig meina að frum eðli hundsins sem veiði dýr er að fela sína eigin lykt með þessum hætti.

En vandamálið er engu að síður það að þegar inn er komið vekur þetta ekki mikla gleði á heimilinu þar sem lyktin fyllir öll vit og ruglar allt jafnvægi heimilisins. Nú er víst komið að baði, en virkni baðsins er nokkuð háð hvernig sápu þú notar.

Best er að notast við vörur sem innihalda citrus olíur eða berja safa, þessar vörur virka best á erfiðar lyktir.

  • Passaðu að hafa auga með hundinum þegar þú ferð í göngur.
  • Ekki skilja skit eftir í garðinum eða annarsstaðar, þannig kemurðu í veg fyrir að hundurinn velti sér upp úr eigin saur í garðinum og einnig að aðrir hundaeigendur þurfi að berjast við sína hunda í göngutúrum.
  • Þú getur reynt að venja hundinn af þessu með því að tengja þessa aðgerð við einhvað slæmt, sprauta vatni úr brúsa á hann eða einhvað álíka. En auðvitað er einfaldast… þrífðu upp eftir hundinn.
Deila á facebook