Andremma
Andremma getur valdið því að þú reynir að halda hundinum frá þér einsog þú mögulega getur. Oft er þetta orsök tannskemmda eða sýkingar, einnig getur verið að þetta ástand þurfi læknismeðferðar, Hægt er að koma í veg fyrir þetta ástand með því að vinna kerfisbundið með hundinum strax frá hvolpa árunum, jú það þarf að bursta tennurnar alveg einsog hjá mannfólkinu.
Andremma getur verið einnig orsökuð af mjög leiðinlegu vandamáli, sauráti. Sumir hundar líta á skítinn sem nokkurskonar snakk sem er ávalt til staðar. Sumir vilja meina að þeir líti í þetta “snakk” vegan næringaskorts.
Það eru til nokkur góð ráð við þessu t.d. eru til vörur sem hægt er að úða yfir matinn og þannig verður saurinn vondur á bragðinn, annað ráð sem sumir hafa leitað til er að úða pipar yfir saurinn svo hann verði minna heillandi.
Allt eru þetta góð ráð en besta ráðið er að þrífa upp eftir hudninn, fylgjast vel með hundinum á göngutúrum, og kenna hundinum skipanir um að láta kyrrt.
Sniðugar vörur sem hægt er að kaupa eru auðvitað til svo sem hundatannkrem, nagbein sérstaklega hönnuð fyrir andremmu. Gott er einnig að gefa hundinum hrá bein til að naga, þau komast mikið inn á milli og geta hreinsað vel á milli tannana, ef ekkert af þessu virkar og lyktin fælir allt og alla frá þá skalltu leita til læknis, sykursýki og margskonar sýkingar geta orsakað andremmu.