Sunnudagur, maí 20, 2012

Besti vinurinn

Allt frá því að við mannfólkið fórum að eiga hunda hefur félagskapur þeirra einn og sér verið okkur nægur. Við höfum dáðst að þeim, elskað þá, treyst á vernd og hjálp þeirra á heimilinu og við tómstundaiðkanir.

Það er nú aðeins á síðustu árum sem við höfum byrjað að rannsaka huga þeirra, hvernig þeir læra og túlkun þeirra á okkar eigin framkomu. Eftir því sem fólki fjölgar og við verðum ávallt uppteknari og uppteknari við vinnu og áhugamál, verður alltaf flóknara að eiga hund. Fólk kvartar nú orðið yfir hinu minnsta, góðir hundar með ekkert slæmt í huga sem hlaupa upp að ókunnugum eða jafnvel gelta í garðinum geta orðið umkvörtunarefni sem geta haft slæmar afleiðingar. Hundar hafa varnareðli og geta gelt, jafnvel sýnt ókunnugum sem koma að umráðasvæði þeirra  tortryggni og getur leitt til hræðslu hjá fólki, slíkt getur boðið hættunni heim. Það er okkur öllum því fyrir bestu að við mannfólkið og gæludýrin okkar völdum sem minnsta ónæði og óröryggi hjá öðrum.


 

Við erum heppin í dag hve margir hafa lagt undir sig rannsóknir í hundaatferli og hvernig hundar geta brugðist við ólíkum aðstæðum. Áralöng reynsla hefur fært okkur skilning um að við getum alið upp hvolp til að vera fullur af leik og jafnframt kunnað sig, án mikillar þjálfunar. Hvolpar eru aldir upp eins og börn, þeir þurfa að kunna sínar eigin takmarkanir og hver samþykkt hegðun er, þeir þurfa að læra að þekkja muninn á milli samþykktrar og ósamþykkrar hegðunar.

Kannski er réttast að tala ekki um að þjálfa hvolpa, heldur frekar að kenna þeim og stjórna. Að vera eigandi hunds gerir þig ábyrgan fyrir því að taka við þeim fróðleik sem aðrir hafa safnað saman, fylgja honum  eftir og kenna hundinum muninn á réttu og röngu. Jafnvel þó að hundurinn þinn sé ekki lengur hvolpur er ekki orðið of seint að grípa inn ef hann hefur tekið upp pirrandi, þreytandi eða jafnvel hættulega hegðun. Hafa ber í huga að ánægður hundur er sá sem finnur til öryggis og er viss um sinn stað í fjölskyldunni. Hundar kunna að meta og jafnvel hafa þörf fyrir samþykki eigenda sinna. Sem hundaeigandi þarftu að vera á sömu bylgjulengd og hundurinn og þannig verða samskiptin einfaldari og þið ánægðari saman.

Hundaþjálfun tekur ekki langan tíma, en það er ekki hægt fylgja einhverri „galdra“formúlu og ná árangri yfir nóttu. Ekki er nauðsynlegt að ná þeirri stjórn að geta látið hundinn ganga á línu eða því sem óskað er eftir á hundasýningum.

Leyndarmálið er að nálgast hundinn á réttan hátt og að kenna honum að vera hluti af þínu lífi. Byrjaðu að leiðbeina hundinum um leið og þú færð hann inn á heimilið. En fyrir þá sem eru þegar komnir í vandræði með hegðun hunds, byrjaðu í dag að leiðbeina honum.

Upphafið er að læra að skilja hundinn og að læra að vera húsbóndi á þann hátt að hundurinn skilji þig. Frá þeim stað opnast hundurinn og þú nærð þeim árangri sem þú óskar eftir, hvort sem þú vilt aðeins fá úr honum gleði og hamingju vinskaps eða öfund allra fyrir undirgefni og hlýðni.

Ef þú hefur þegar kennt hundinum að röng hegðun hefur sínar afleiðingar, þá eru til ráð til að ná hundinum á þann stað sem þú vilt hafa hann, jú það er víst hægt að kenna gömlum hundi nýja hluti. Hundar geta aðlagað sig alveg hreint ótrúlega, þúsundir ára meðal manna hafa gefið þeim þann eiginleika. En hundar verða að vita hvar þeir passa í fjölskylduna og hvers er ætlast af þeim. Það þarf eftirfylgni og stöðugleika í stjórnun til að gefa þeim öryggi í umhverfi sínu. Vertu samkvæmur sjálfum þér og trúr þeirri aðferð sem þú ætlar að beita í þjálfun hundsins.

Loforð þitt sem hundaeiganda til hundsins:

  • Gefa honum að borða og sinna feldinum almennilega og reglulega.
  • Leita til læknis þegar þú sérð einkenni veikinda.
  • Tryggja hann fyrir veikindum ef til alvarlegra veikinda eða slys koma.
  • Tryggja að hann sé ormahreinsaður og bólusettur.
  • Hálsól með nafni og upplýsingum um þig sem eigenda sem hann ávallt ber utanhúss.
  • Veita viðeigandi þjálfun og útrás.
  • Að íhuga geldingu snemma til að koma í veg fyrir got sem þú vilt ekki.
  • Tryggja að það sé almennilega gætt að honum þegar þú getur það ekki.
  • Skilningur á skuldbindingu þess að gera hundinn að fjölskyldumeðlim allt til enda.

Það er staðreynd að margir víkja frá skuldbindingum sínum til dýrs við hið minnsta, að gera sér grein fyrir skuldbindingu þess að fá sér hund er mikilvægt fyrsta skref. Sorgleg staðreynd er að margir þeirra hunda sem hafa ratað inn hjá dýrahjálp, svo ekki sé minnst á þá sem ekki fá tækifæri á nýju heimili, er að þeir eru  fórnarlömb fólks sem ekki stóð við loforð sitt um að gæta hundsins til enda og kenna honum að haga sér í samræmi við þarfir og óskir tímans sem við lifum í.

Að eiga hund er einn af bestu gleði gjöfum lífsins, þar sem hundurinn getur bætt upp það sem okkur vantar í félagskap, samvinnu og aðdáun. Hundar víkja sjaldan frá sínu loforði um aðdáun og væntumþykju til eigendans og nánustu ættingja hans.

Hundar gefa óvíkjandi traust og væntumþykju. Þeir gagnrýna ekki misgjörðir og þeir taka ávalt á móti þér með mikilli gleði sama hvað þú hefur gert rangt annarsstaðar.

Hundar lengja lífið. Jú, með því að gefa þér ástæðu eða neyða þig til að stunda útivist. Svo ekki sé minnst á það að þú færð tækifæri til að leika þér eins og barn án þess að líta út eins og kjáni.

Hundurinn kynnir þig fyrir fólki. Oftar en ekki þá muntu lenda í því að aðrir hundaeigendur opni sig fyrir samræður á máta sem er næstum óhugsandi meðal þeirra sem ekki eiga hunda.

Fyrir einkabarn eða einhvern einmana getur væntumþykjan frá hundi verið allt sem ímyndunaraflið leyfir, frá því að vera dýr með yfirnáttúrulega krafta, trúnaðarvinur, huggari, orkumikill leikfélagi, tryggur félagi til að deila öllu með, vinur sem aldrei svíkur, eign til að státa sig af eða stöðutákn fyrir þá sem vilja bæta sjálfsímyndina.

Við þörfnust hunda og hundar þarfnast fólks. Tökum ábyrgð á okkur og okkar dýrum og reynum að vinna saman að jákvæðri ímynd hundaeiganda.

Nýtt af spjallinu:


Hvað finnst hundaeigendum almennt um Geirsnefið?

Autor: vo
Mætti ekki nýta Geirsnefið mikið betur fyrir hunda og eigendur þeirra, hólfa svæðið niður...
Sjá meira..

Eitthvað að gerast hér

Autor: emil
Jæja nú er þetta að fara að gerast, kominn með tæpar 500 hundategundir og er að vinna við...
Sjá meira..
Deila á facebook