Á hundaspjallinu koma hundaeigendur saman og leita ráða hjá öðrum, spjalla um hundana sína, sýnir þá og margt fleira. Skráðu þig á spjallið og taktu þátt í umræðunni!
Skrá mig Núna
Í gærkvöldi sat ég heima í sófanum og slappaði af. Við eigum tvo hunda og oftar en ekki er mikið fjör á heimilinu. Þar sem ég settist niður tók ég eftir því að Tinni (eldri hundurinn) byrjaði að reyna að fara upp á Kola (þann yngri). Mín fyrstu viðbrögð voru þau sömu og svo oft áður að segja honum að hætta. Hefur ekki verið neitt vandamál með það, hann snýr sér að mér og lítur niður á gólf skömmustulega, en stuttu síðar var hann að gera sig líklega til að hefja leikinn á ný. Svona hélt þetta áfram í nokkuð góða stund þar til að lokum komst ró á heimilið.
Þegar ég náði loks að setjast niður og slappa af fór ég að rekja í huganum hvernig ástandið hefur verið á heimilinu undanfarið. Þetta hefur verið ítrekað verið að gerast og ég sit með þá hugsun hvað veldur. Sem karlmaður var það fyrsta sem ég hugsaði að Tinni væri einhverskonar kynvillingur, enda sá ég að ef ég gengi um húsið og væri endalaust að reyna að fara uppá konuna þá yrði það skilgreining á mínu ástandi. Hvað þá ef það væri annar karlmaður á heimilinu sem ég væri trekk í trekk að reyna að fara uppá.
Allt frá því að við mannfólkið fórum að eiga hunda hefur félagskapur þeirra einn og sér verið okkur nægur. Við höfum dáðst að þeim, elskað þá, treyst á vernd og hjálp þeirra á heimilinu og við tómstundaiðkanir.
Það er nú aðeins á síðustu árum sem við höfum byrjað að rannsaka huga þeirra, hvernig þeir læra og túlkun þeirra á okkar eigin framkomu. Eftir því sem fólki fjölgar og við verðum ávallt uppteknari og uppteknari við vinnu og áhugamál, verður alltaf flóknara að eiga hund. Fólk kvartar nú orðið yfir hinu minnsta, góðir hundar með ekkert slæmt í huga sem hlaupa upp að ókunnugum eða jafnvel gelta í garðinum geta orðið umkvörtunarefni sem geta haft slæmar afleiðingar. Hundar hafa varnareðli og geta gelt, jafnvel sýnt ókunnugum sem koma að umráðasvæði þeirra tortryggni og getur leitt til hræðslu hjá fólki, slíkt getur boðið hættunni heim. Það er okkur öllum því fyrir bestu að við mannfólkið og gæludýrin okkar völdum sem minnsta ónæði og óröryggi hjá öðrum.
Read more...Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 6. maí. Dómarar: Annette Bystrup (Danmörk), Birte Scheel (Danmörk), Kresten Scheel (Danmörk), Svend Lövenkjær (Danmörk), Timonen Unto...
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 29. júlí Dómarar: Carlos-Fernandez Renau (Spánn), Jos De Cuyper (Belgía), Kornelija Butrimova (Litháen), Javier Sanchez (Spánn), Monique...
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 21. október Dómarar: Blaz Kävcic (Sólvenía), Gert Christensen (Danmörk), Marija Kävcic (Sólvenía), Rony Doedijns (Holland), Saija...
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 27. janúar. Maria Talvitie (Finnland), C.E. Cartledge (Bretland), Rafael Malo Alcrudo (Spánn), Tino Pehar (Króatía), Lisbeth Mach (Sviss),...
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 4. maí. Dómarar: Liliane De Ridder- Onhena (Belgía), Cathy Delmar (Írland), Sean Delmar (Írland), Kitty Sjong (Danmörk), Albert Wight (Bretland).
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 27. júlí Dómarar: Rita Reyniers (Belgía), Theo Leenen (Belgíu) ofl.